Færsluflokkur: Bloggar

Það ætti að banna skotveiðar sem hobbý.

Já það er eins og ég hef sagt að mönnum sem hafa áhuga á að skjóta úr byssum er ekki treystandi þar þeir hafa ekki aga eða virðingu fyrir verkefninu heldur haga sér margir eins og krakkar í byssó.  Það ætti að banna skotveiðar sem sport.   Til þess að grysja í stofnum rjúpu- og gæsastofnsins og til þess að tryggja að verði til eitthvað á borð landsmanna ætti að bjóða það út til atvinnuveiðimanna sem væru ekki að veiða uppá sportið, heldur einungis til nytja.
mbl.is 18 fálkar voru skotnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fimm manna fjölskylda óskar pólískts hælis í Garðabæ!

Ég horfði á fréttatíma ljósvakamiðlanna á föstudagskvöldið og leið eins og ég væri að upplifa einhvern súrrealískan gríngjörning í draumalandinu og gæti síðan vaknað og sagt....hehe súr draumur í gangi.   Jón Gnarr og Dagur B Eggertsson uppá blokk í Æsufellinu að tilkynna um nýjan meirihluta í Reykjavík og að Jón Gnarr borgastjóri.   Bíddu hvaða grín er eiginlega í gangi.   Ég byrjaði á að hringja í vin minn í Garðabænum og spurði hvort ég gæti ekki bara sótt um pólitískt hæli í Garðabæ.

Það fyrsta sem ég hugsaði...“Guð minn almáttúgur, þvílíka ruglið“.   Miðbæjar rotturnar, nett að hæðast að íbúum Æsufells í Breiðholti, að halda blaðamannafund upp á þaki um að þeir hafi myndað nýjan meirihluta um stjórnun stærsta „fyrirtæki“ landsins, Reykjavíkurborg.     Þau sögðu meirað segja með hrokafullri glettni að þau hafi aldrei komið á þennan skrítna stað, í úthverfi í Reykjavík.  Í bakgrunni stóð fólk glottandi, með sigurglampa í augum, eins og það væri að bíða eftir því að komast undan sviðsljósi fjölmiðla til að halda gott partý. 

Dagur, æskuvinur minn og sessunautur í árbæjarskóla, er greinilega algerlega gjaldþrota í pólitíkinni.  Hann hefur greinilega verið afgreiddur innan Samfylkingarinnar.    Í hans huga er greinilega hans eina von að fara í þennan meirihluta og vonast til þess að slá í gegn.  

 Shit!  Það er mikið verk fyrir höndum að sannfæra mig um að það sé stjórntækur meirihluti í Reykjavík.   Ég óska Hönnu Birnu velfarnaðar í stjórnarandstöðu í borginni á komandi mánuðum.

kveðja,

Helgi Már Bjarnason


Er virkilega ekki neitt betra í boði í þessum kosningum.

Af öllu því frambærilega fólki sem við Íslendingar höfum yfir að ráða er þá virkilega eina manneskjan sem fólk telur að eiga að verða forsætisráðherra í næstu kosningum, 64 ára gömul, gráhærð, þreytt og lúinn félagsmálapakkapólitíkus, lesbísk flugfreyja!!!!   Spáið aðeins í þetta.

Hún hefur flúið af vettvangi í þessari kosningabaráttu, hefur nákvæmlega engar lausnir nema einhverja mjög svo óskýra patent lausn, að ganga í Evrópusambandið.   Í þokkabót ætlar hún að ganga í hjónaband með sósíalistaflokknum sem mun ekki einu sinni leyfa henni svo mikið sem hreyfa litlu tá í átt að evrópusambandinu.  Þeir vilja senda alla uppá öræfi til að gróðursetja tré syngjandi ættjarðarsöngva til að skapa atvinnu.    Ég er ekki allveg að sjá hvaða lausnir komandi ríkistjórn ætlar að koma með.  Þau eru ekki með hana ein og sér... hvað þá saman.

Við erum að fara að kjósa yfir okkur forsjárhyggju vinstristjórn sem mun drepa niður atvinnulífið hér með skattpíníngu, reglugerða og haftastefnu.  Þau telja að pólítíkusar, ríkið, fari betur með peningana mína en ég sjálfur.  Þess vilja þeir hækka á mig skattana svo ég geti allveg örugglega ekki notað þá í neyslu og þar af leiðandi búa til tekjur fyrir fyrirtæki þessa lands.  Ætli ég meðaltekju fjölskyldufaðirnn með öll íþyngjandi húsnæðislánin þurfi ekki líka að borga háttekjuskatt áður en árið er liðið. 

 Það er sorglegt til þess að vita að yngstu kjósendur þessa lands muna ekki nógu langt aftur til að vita hvað það þýðir.

Ég held að það sé að renna upp annað "Guð Blessi Ísland" móment hérna... á kjördag.  Við erum "fokkd" ef úrslitin verða í samræmi við kannanir.  

Ég held ennþá í vonina.  VÖRUMST VINSTRI SLYSIN.  Þið sem ætlið að "refsa" Sjálfstæðisflokknum í kosningunum,  hugsið þetta í þaula.  Þetta er ekkert grín!   Kjósum eina flokkinn sem er með stjórnmálastefnu í þágu íslensku þjóðarinnar og er með íslenska stjórnmálastefnu. 

Ég hef ákveðið (sem fyrr) að kjósa Sjálfstæðisflokkinn í þessum kosningum.


Þór Jóhannesson, ótrúlegur bloggari. Lokar á comment. :) Illa vinstri grænn.

ertu allveg örugglega bara 34 ára..og bókmenntafræðingur...  Það er eins og þú hafir verið í spennitreyju síðan í kaldastríðinu og nú loksins þoriru að tjá þig þegar D er í smá lægð.  Þú ert samt að sturlast úr svekkelsi yfir því að fylgistapið í könnunum er bara um 6% frá því í síðustu kosningum. OG samt er prófkjög og landsfundur eftir sem alltaf færir flokknum 5 % í viðbót.  Haltu bara áfram að vera í dalakofanum, sturlaður að öfund og heift.  Við hinir, vinnandi og hugsandi menn sem höldum þjóðfélaginu gangandi skulum bara halda því áfram.

Ertu kannski atvinnulaus og bitur líka.... þú hefur svo mikinn tíma til að blogga.  Heyrðu og já... má ég spyrja ...hverju tapaðir þú á bankahruninu?


Mótmælin eru niðurrifsstarfsemi.

 

Í mínum huga er fólkið sem var að "mótmæla" við Hótel Borg, hyski.  Því miður.  Það sem mér finnst alvarlegast er að ég hef mjög traustar heimildir fyrir því að óvandað fólk úr röðum ungliða vinstri grænna eru að skipuleggja þessar uppákomur.  Fólk eins og Álfheiður Ingadóttir og hennar fólk.  Þetta eru ekki mótmæli þjóðarinnar, heldur skrílslæti fólks sem vill ríkisstjórnina frá vegna þess að þau vilja annan flokk í ríkisstjórn og nota til þess niðurrifsaðferðir og upplausn.

Ég mun aldrei styðja slíkt.  Ég tel mig fulltrúa hins mikla þögla meirihluta sem vinnur vinnuna sína, fer með börnin sín í skóla og leiksskóla og reynir að halda þjóðfélaginu gangandi með því að lifa eðlilegu lífi en ekki leysa það upp. 

Við búum í lýðræðisþjóðfélagi.  Ef þið viljið hafa áhrif, þá einfaldlega takið þið þátt í því. Ýmist með því að taka þátt í stjórnmálaumræðu eða jafnvel reyna að komast til áhrifa í stjórnmálaflokki.  Skrifið greinar, haldið málfundi, skrifist á eða hafið samband við þingmenn.  Síðan að sjálfsögðu notið þið atkvæðisréttin ykkar í kosningum. 

Ég kalla líka eftir málefnum mótmælenda.  "Að mótmæla ástandinu" segir mér ekki neitt og jafn fáránlegt og að mótmæla vondu veðri.   Fólk sem vill ríkisstjórnina, seðlabankastjóra og FME frá segir mér ekki hvað það vill í staðinn.   Eruð þið kannski bara reið...punktur.  Andið með nefinu og byrjið að hugsa hvað þið viljið áður en þið skundið með kufla fyrir andlitinu niður á austurvöll me múrstein í hendi.  Er kannski ástæðan ykkar eigin mistök í lífinu, sjálfskaparvíti eða óhamingja.   Eruð þið virkilega búin að kynna ykkur málin...eða eruð þið kannski "atvinnumótmælendur", þeir hinir sömu og mótmæltu Falun Gong og Kárahnjúkum hehe...þ.e. alltaf til í að mæta í mótmæli burtséð frá málstaðnum.

  Það fór helmingur banka vesturlanda á hausinn og lítil ríkisstjórn á Íslandi gat ekkert gert í því, ekki neitt! Það er alltaf að koma betur og betur í ljós.  5 af 7 stærstu bönkum Bretlands t.a.m. fóru í þrot! Í sjálfu  Það er hinsvegar hið mikla björgunarverkefni sem liggur fyrir sem þarf að ráðast í af fumleysi og SAMSTÖÐU.  Eðlileg rannsókn á því sem gerðist fer fram og tekur tíma. 

Megi 2009, þó það ár verði erfitt, verða árið þar sem við íslendingar komum okkur aftur uppá lappirnar.  Til þess þarf samstöðu, uppbyggingu, fumleyis, vissu,  vinnusemi og og ekki síst skynsemi.

Góðar stundir.


Hvað þarf til að að maður taki til við bloggskriftir.

Nú eru þvílíkar hamfarir búnar að ganga yfir og skálmöld ríkjandi í bloggheimum og hefðbundnari miðlum að maður veltir fyrir sér að ef það hreyfir ekki við tjáningarþörf minni í bloggheimum þá gerir það líklega ekkert.  Sérstaklega þar sem mér finnst sumur bloggarar vera svo hrikalega fanatískir og beinlínis snarbilaðir í skoðunum sínum.   Heilbrigð rökhugsun og sú góða tilhneyging að horfa á mál á breiðum grunni virðist vera ábótavant hér.

Ég ætla að gera heiðarlega tilraun og reyna að koma skoðunum mínum á framfæri hér á næstu vikum.   Verandi í bullandi vinnu, með stóra fjölskyldu og mikið af áhugamálum þá er ég ekki að skilja hvernig ég á að finna tíma í þetta.  Kannski ég ætti að byrja á stuttum blammeringum og hugleiðingum.

Vonum það besta... ég er allavega mættur aftur. Núna.  :)

PS:  Ég ætla líka að grafa upp einhverja góða Herman brandara svona til að auka tíðni færslna :)   Síðan kann ég ekkert á tónlistarhlutan af þessu bloggi... þ.e. ef mér langar að deila með ykkur tónlistarspekinni minni.


Neytendaandóf

Umræðan í þjóðfélaginu um hátt verð á vöru og þjónustu hefur verið mikil undanfarin ár.  Olíuverð, hátt matarverð, vaxtarmunur bankanna, lyfjaverð og fleira í þeim dúr er mikið til umfjöllunar.  Oftar en ekki er ástæðan sögð vera fákeppni, álögur hins opinbera eða gróðafíkn stórra fyrirtækja.  T.d. í umræðunni um hátt matarverð er því oft borið við að megin ástæðan séu háir tollar, flutningskostnaður og skortur á stærðarhagkvæmni við innkaup.   Bankarnir telja kjörin sem þeir veita viðskiptavinum sínum hér á landi vel sambærileg við kjör þau sem þekkjast erlendis.  Einnig verja þeir ofurhagnað sinn með því að segja að meginhluti hagnaðarins sé vegna starfssemi erlendis.   Hvað verð á olíu og áfengi snertir er yfirleitt ástæðan sögð vera há gjöld frá hinu opinbera.  

Þó svo að svo að það megi skýra hátt verð með þessum rökum eða ástæðum þá tel ég ónefnda eina stóra ástæðu þess að neytendur láta þetta yfir sig ganga án teljandi mótspyrnu.  Það er alger skortur á andófi neytenda.  Við Íslendingar erum afar sérstakir að þessu leyti, við virðumst alltaf láta flest yfir okkur ganga og tökum þegjandi hljóðalítið upp veskið og borgum uppsett verð.  Sama á við um stór mál sem koma upp í fjölmiðlum.  Þau eru í mikilli umræðu í örfáa daga án niðurstöðu og síðan gleymast þau í hugum fólks.  

Hverju ætli sé um að kenna.  Ætli að við séum svo vön því að geta ekkert að gert og teljum rödd eins ekki geta hreyft við málum.  Erum við búin að vera svo lengi í skottinu í umræðunni að við erum löngu hætt að nenna að spá í þetta.   Ætli að það sé búið að telja okkur trú um að þær ástæður sem taldar voru upp hér fyrir ofan séu góðar og gildar ástæður.   Ég er allavega algerlega ósammála því.  Þorvaldur Gylfason hittir algerlega naglann á höfuðið þegar hann segir neytendur í aftursætinu í þessum málum og þ.a.l. ekki með neina stjórn á því hvernig kjör þeir fá.  Neytendaandóf er svarið...miklu sterkari neytendaumræða þarf að eiga sér stað.  Neytendasamtökin þurfa að vera miklu herskárri í starfi sínu.  Talsmaður neytenda á að breytast í andófsmann neytenda.  Það myndi vekja fjölmiðlanna og kveikja upp í umræðunni.  Það má efast um hlutleysi fjölmiðlanna þar sem stór hluti þeirra er í eign manna sem myndu síst af öllu koma af stað kröftugri umræðu um neytendamál.  

   Af hverju hafa ekki fyrir löngu sprottið upp vefsíður þar sem beinlínis er verið að segja fólki hvar á ekki að versla sökum okurs.  Þar væri hægt að birta top 10 lista yfir dýrustu verslanirnar í hverjum geira fyrir sig og síðan fjalla um einstaka níðingsverk hinna ýmsu fyrirtækja.   Af hverju myndast ekki svolítið reið og fanatísk umræða þar sem gengið er einfaldlega frá fyrirtækjum sem dirfast að okra á okkur með ósvífnum hætti.  Af hverju eru fjölmiðlar ekki stöku sinnum með greiningu á því hvernig verð einstaka vöruflokka er og hver álagningin í raun er.  Af hverju ert ekki fjallað um eignarhald fyrirtækja í virðiskeðju hvers geira fyrir sig og þannig í raun rýnt í hverjir það eru sem eru að fá framlegðina í vasann.  Af hverju hefur ekki verið umfjöllun í Kompás um raunveruleg hneyksli og flett ofan af því hvernig álagning á smásölumarkaði getur verið svo svínsleg að það er hreint út sagt ótrúlegt. Einnig mætti fjalla um hvernig bankarnir eru raunverulega í verðsamráði eða allavega sammála um að vera ekki samkeppni í ákveðnum þjónustuliðum.  Er t.d. einhver að ennþá að athuga hvort lækkun virðisaukaskatts á matvöru hafi í raun skilað sér niður til neytenda.  Ég tel að smásalarnir hafi stungið þeirri lækkun að mestu í vasan sjálfir sem er gremjulegt...sérstaklega af því að þeir virðast komast upp með það án þess að mikil mótmæli eigi sér stað.  Maður heyrir út í horni "Ég vissi alltaf að þetta myndi gerast, hvað getum við svo sem gert".Getur t.d. einhver sagt mér hvernig maður kemst í gegnum daginn án þess að Baugur seilist ofan í vasana mína. :)  Það væri gaman að komast að því.

En nóg komið af pirringi hérna megin.  Ég held að við ættum að taka Frakka okkur til fyrirmyndar...því þeir hefja alltaf Bastillubyltingu um leið og þeim finnst að sér vegið.   Hættum nú að vera svona passív og verum svolítið góð með okkur.  Förum í framsætið og hefjum Neytendaandóf.

   


Ég gleymdi einu smáatriði....

...þegar ég fékk þá hugmynd að byrja að blogga.  Maður þarf að hafa tíma í að skrifa.  Ég á eftir að koma einhverju systemi á það.  Ég satt að segja skil ekki hvernig sumir ofurbloggarar hérna hafa tíma í að skrifa og sýsla með blogg síðurnar sínar.  Eiga þeir ekkert líf.... sumir hverjir hljóta að verja allt að tveimur klukkustundum í skrif og uppfærslur á bloggsíðum sínum.

Allavega þá ætla ég að reyna að gera betur.  Ég hafði t.d. voðalega miklar og heitar skoðanir hér um daginn þegar byltingin í borginni átti sér stað.  Núna brenna önnur mál á mér eins og neytendamál og áfengisfrumvarpið.  Nú svo má allveg tjá sig um dægurmál, eins og fótbolta, tónlist og kvikmyndir ef ég tel það þess vert að blaðra um það hér á blogginu.   Sú staðreynd að ég er giftur og með þrjár litlar prímadonnur á heimilinu gæti orðið tilefni til skemmtilegra skrifa. :)

Hermann og wikipedia uppfletting vikunnar er meðal uppfyllingar færslna sem gætu dúkkað uppi hér ef ég er massa latur við skriftir.        

   


Hver er ég.....smá profiling herna handa ykkur.

Er það ekki viðeigandi að maður kynni sig.  Það væri nú voðalega gaman að upphefja sjálfan sig svolítið hérna eða fá jafnvel gestapenna til að kynna sig til leiks.   En látum smá lýsingu frá mér duga.  

ÉG er 35 ára gamall strákur sem heldur ennþá að hann sé 25 ára.   Fáránlegt hvað tíminn líður.  ÉG vona samt að ég sé ekki álitinn vanþroska hehe en ég einn af þeim sem finnst hann vera innan um eintóma gamlingja þegar ég umgengst jafnaldrana.  Meeeen....þegar ég fór á reunion hjá árgangnum mínum í MS hehe. Það var svakalegt.   Þá vitið þið það ég var í MS, útskrifaðist á Rave árinu mikla 1992.  Reyndar sama ár og Rave tjaldið var skorið niður á Eldborg um Verslunarmannahelgina.  Þvílík vanhelgun man ég hehe.

Uppalinn Árbæingur, er í sama árgangi og gullaldarlið Fylkis þar sem menn eins og Þórhallur Dan, Kiddi Tomm, Finnur Kolbeins, Gunnar Þór Péturs fóru á kostum.  Í því árgengi voru líka menn sem náðu minni árangri á knattspyrnuvellinum en skunduðu á vígvöll stjórnmálanna.  Í dag þegar maður fréttir af því að Dagur B Eggertsson sé orðinn borgastjóri minnist maður þess tíma þegar ég sat við hliðina á honum í sama bekk í Árbæjarskóla.  Hann af vinstri sinnuðum ættum og ég með blátt blóð í æðum og átti pabba sem vann út á Velli.   Það var efni margra rökræðna og skemmtilegra uppákoma...sem ég get nú einni færslu í síðar hér.  Ég get til dæmis sagt ykkur frá leiksigri okkar félaga þegar við lékum aðalhlutverkin í "Diðrik og Júlíu", magnaðri uppfærslu á þessu ódauðlega lagi Ladda og Halla.

hmmm hvað fleira.... Austurbæingur, árbæingur, gallarður Fylkismaður, Ms-ingur.   Já... ég fór síðan strax eftir MS beint í Háskóla Íslands.  20 ára gamall tók ég strætó niður í bæ og hugðist skrá mig í sagnfræði.  Hehe sú strætóferð var örlagarík....ég einhvern veginn komst að þeirri niðurstöðu að það væri ekki mjög praktískt að fara í sagnfræðina heldur væri betra að hafa hana að áhugamáli.  Ég endaði í Viðskiptafræðinni.  Kláraði hana á fimm árum og á meðan var ég duglegur að sinna félagslífi.  Lét plata mig í að verða formaður Mágusar, félags viðskiptafræðinema, í eitt ár og síðan var ég eitthvað viðloðandi háskólapólítikina.  Vaka var auðvitað eina vitið.....

Á menntaskólaárunum byrjaði ég að fikta við að koma fram í útvarpi.  Ég náði að sameina ástríðu mína á tónlist og athyglisþörf á framhaldsskóla stöðinni Útrás sem þá var og hét.  Ég stýrði stöðinni meirað segja á árunum 1991 til 1992.  Eftir útskrift þá um vorið tókum við nokkrir félagarnir okkur til og leigðum Útrás um sumarið.  Frábær tími....hehe margir af útvarpsmönnum framtíðarinnr stigu sín fyrstu spor þarna.  Stöðin var meiraðsegja smá "sumar hittari".    Þetta útvarpsbrambolt mitt varð til þess að í dag er ég ennþá að stjórna sama útvarpsþættinum.  Party Zone, dansþáttur þjóðarinnar er víst orðinn elsti útvarpsþáttur landsins.  hehehe samt gefum við okkur út fyrir að vera mega trendý og flottir tónlistarlega.  Þannig að við erum ekkert að flagga þvi hvað við erum orðnir gamlir. 

Í dag er ég giftur, 3 barna faðir og bý í laugardalnum.  Ég er meirað segja kominn með hund líka.   Það vantar bara að ég kaupi Space Shuttle bíl og flytji í úthverfin á ný..... þá er ég orðinn þessi vísitölu millistéttar úthverfa eitthvað...hehe.   Ég tók reyndar ekki við "heildsölunni hans pabba", kannski vegna þess að hann átti enga. :)   Ég bý í Latabæ þar sem ég vinn.  Áður var ég eitthvað viðloðandi kvikmyndaframleiðslufyrirtæki þannig að sú reynsla ásamt menntun gáfu mér tækifæri að vinna með Íþróttaálfinum og hans fólki. ;) Hresst og heilbrigt.    

Hér á blogginu ætla ég bara fá útrás fyrir skoðanir og koma á framfæri einhverju skemmtilegu hér í blogg heimum.   Ég lofa því að ég verð aldrei eins og einhver bitur flíspeysumamma á barnalandi  en gæti þó missti mig í smá pólítískum skætingi.  Þetta gæti líka orðið tónlistarblogg...hvernig lýst ykkur á það.  ´:)

 

Takk.  Réttið upp hönd sem lásu þetta. :)  

Bless í bili..... hmb  

            


Ég er kominn í Bloggheima. Þrátt fyrir allt.

Hehe...mér hefur alltaf fundist bloggheimur verið hálf kjánalegur pakki.  Fólk að skrifa pistla í einhverri sjálfumgleði og vissu um að aðrir netverjar hafi einhvern minnsta áhuga á því sem þau eru að skrifa.  Já eða að þeir fari yfirhöfuð einhvern tíma inná bloggið hjá viðkomandi.   Ég hef verið að fylgjast með úr fjarlægð og viti menn.  Þegar mbl.is fór að birta á forsíðu sinni random færslur hjá fólki fór ég að standa sjálfan mig að því að smella á áhugaverða færslur.  Ég meirað segja var farinn að setja inn "comment" og kominn með nokkra uppáhalds bloggara sem ég vandi mig á að fylgjast með.  

Well,  if you can´t beat them, join them sagði skáldið og hér er ég.   Ég  hugsa þetta blogg nú aðallega fyrir mig, hér get ég æft mig í að koma hugsunum mínum eða skoðunum "á blað".  Það brennir nú alltaf eitthvað á manni úr þjóðfélagsumræðunni og auðvitað eru áhugamálin eitthvað sem maður er tilbúinn að gaspra eitthvað um.   Þó svo það kítli aðeins að það sé möguleiki á að einhver skoði þetta og komi kannski með athugasemdir þá er ég nú ekki að gera ráð fyrir því að fólk bíði í röðum eftir því að sjá viskuna og snilldina leka af þessari bloggsíðu.   Gaman að þessu....kannski fær maður smá útrás hérna.          

   


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband