5.3.2009 | 20:00
Sturla fer með rétt mál!
Steingrímur og Ögmundur viðhöfðu þvílík gífuryrði og æsingaræður í þingsölum og fóru síðan baka til að hringja símtöl til að kanna stöðu mála í mótmælunum og athuga í leiðinni hvað það væri sem þeir ættu að gjamma næst til að hvetja og ýfa upp þetta ástand.
Steingrímur hefur líka sögu mjög svo óvandaðra orða á þingi í gegnum árin. Meirað segja hefur hann stuggað við forsætisráðherra þegar Björn Bjarna vitnaði í mótsagnakennd ummæli Steingríms þannig að það kom honum afar illa í rökræðum í þinginu. Fjölmiðlar voru notaðir óspart sömuleiðis og í nokkra daga heyrðist ekki skynsemis rödd í ljósvakamiðlunum heldur voru viðtöl við sturlað og firrt fólk ofan á...og ekki bætti það ástandið.
Sturla er strangheiðarlegur alþingismaður sem ber ómælda virðingu fyrir alþingi og öðrum stofnunum í þessu landi. Hann hefur ansi mikið til síns máls hér og ég vill biðja fólk að hlusta og líta í eigin barm.
Og Amir, ég er svoo sammála. Ég var mjög gramur þegar einhver listaspíran fór uppí ræðupúlt á austurvelli og sagði sig tala fyrir þjóðina. Ekki séns hugsaði ég þar sem ég ásamt stórum meirihluta þjóðarinnar mætti í vinnuna og reyndi að halda þjóðlífinu í eðlilegum farvegi hrissti hausinn.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 14.3.2009 kl. 21:32 | Facebook
Athugasemdir
Góð grein - þetta eru orð í tíma töluð - VG er hópur skemmdaverka manna.
Skúli Sigurðsson, 5.3.2009 kl. 20:21
Ykkur er náttúrulega vorkunn. Bláa krumlan er að missa tökin og rólegustu menn taka æðisköst. 18 ár eru nóg. Rest in peace.
Davíð Löve., 5.3.2009 kl. 20:27
.
Það góða við þessa bloggsíðu er hve fáir lesa hana.
Þvílík steypa!
101 (IP-tala skráð) 5.3.2009 kl. 20:30
Sturla Böðvarsson er annálaður drengskapar- og heiðursmaður.
Heimir Lárusson Fjeldsted, 5.3.2009 kl. 20:34
Heyrðu... Nafnlaus... náðir þú ekki fyrstu setningunni. "Hef það frá fyrstu hendi...." Hvað í þeirri setningu nærðu ekki. Get reynt að útskýra það.
En rétt... þvílík steypa að vega svona að stjórnskipan og lýðræðislega kjörnu alþingi.
Helgi Már Bjarnason, 6.3.2009 kl. 11:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.