23.11.2008 | 20:24
Hvað þarf til að að maður taki til við bloggskriftir.
Nú eru þvílíkar hamfarir búnar að ganga yfir og skálmöld ríkjandi í bloggheimum og hefðbundnari miðlum að maður veltir fyrir sér að ef það hreyfir ekki við tjáningarþörf minni í bloggheimum þá gerir það líklega ekkert. Sérstaklega þar sem mér finnst sumur bloggarar vera svo hrikalega fanatískir og beinlínis snarbilaðir í skoðunum sínum. Heilbrigð rökhugsun og sú góða tilhneyging að horfa á mál á breiðum grunni virðist vera ábótavant hér.
Ég ætla að gera heiðarlega tilraun og reyna að koma skoðunum mínum á framfæri hér á næstu vikum. Verandi í bullandi vinnu, með stóra fjölskyldu og mikið af áhugamálum þá er ég ekki að skilja hvernig ég á að finna tíma í þetta. Kannski ég ætti að byrja á stuttum blammeringum og hugleiðingum.
Vonum það besta... ég er allavega mættur aftur. Núna. :)
PS: Ég ætla líka að grafa upp einhverja góða Herman brandara svona til að auka tíðni færslna :) Síðan kann ég ekkert á tónlistarhlutan af þessu bloggi... þ.e. ef mér langar að deila með ykkur tónlistarspekinni minni.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.