Mótmælin eru niðurrifsstarfsemi.

 

Í mínum huga er fólkið sem var að "mótmæla" við Hótel Borg, hyski.  Því miður.  Það sem mér finnst alvarlegast er að ég hef mjög traustar heimildir fyrir því að óvandað fólk úr röðum ungliða vinstri grænna eru að skipuleggja þessar uppákomur.  Fólk eins og Álfheiður Ingadóttir og hennar fólk.  Þetta eru ekki mótmæli þjóðarinnar, heldur skrílslæti fólks sem vill ríkisstjórnina frá vegna þess að þau vilja annan flokk í ríkisstjórn og nota til þess niðurrifsaðferðir og upplausn.

Ég mun aldrei styðja slíkt.  Ég tel mig fulltrúa hins mikla þögla meirihluta sem vinnur vinnuna sína, fer með börnin sín í skóla og leiksskóla og reynir að halda þjóðfélaginu gangandi með því að lifa eðlilegu lífi en ekki leysa það upp. 

Við búum í lýðræðisþjóðfélagi.  Ef þið viljið hafa áhrif, þá einfaldlega takið þið þátt í því. Ýmist með því að taka þátt í stjórnmálaumræðu eða jafnvel reyna að komast til áhrifa í stjórnmálaflokki.  Skrifið greinar, haldið málfundi, skrifist á eða hafið samband við þingmenn.  Síðan að sjálfsögðu notið þið atkvæðisréttin ykkar í kosningum. 

Ég kalla líka eftir málefnum mótmælenda.  "Að mótmæla ástandinu" segir mér ekki neitt og jafn fáránlegt og að mótmæla vondu veðri.   Fólk sem vill ríkisstjórnina, seðlabankastjóra og FME frá segir mér ekki hvað það vill í staðinn.   Eruð þið kannski bara reið...punktur.  Andið með nefinu og byrjið að hugsa hvað þið viljið áður en þið skundið með kufla fyrir andlitinu niður á austurvöll me múrstein í hendi.  Er kannski ástæðan ykkar eigin mistök í lífinu, sjálfskaparvíti eða óhamingja.   Eruð þið virkilega búin að kynna ykkur málin...eða eruð þið kannski "atvinnumótmælendur", þeir hinir sömu og mótmæltu Falun Gong og Kárahnjúkum hehe...þ.e. alltaf til í að mæta í mótmæli burtséð frá málstaðnum.

  Það fór helmingur banka vesturlanda á hausinn og lítil ríkisstjórn á Íslandi gat ekkert gert í því, ekki neitt! Það er alltaf að koma betur og betur í ljós.  5 af 7 stærstu bönkum Bretlands t.a.m. fóru í þrot! Í sjálfu  Það er hinsvegar hið mikla björgunarverkefni sem liggur fyrir sem þarf að ráðast í af fumleysi og SAMSTÖÐU.  Eðlileg rannsókn á því sem gerðist fer fram og tekur tíma. 

Megi 2009, þó það ár verði erfitt, verða árið þar sem við íslendingar komum okkur aftur uppá lappirnar.  Til þess þarf samstöðu, uppbyggingu, fumleyis, vissu,  vinnusemi og og ekki síst skynsemi.

Góðar stundir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Skúli Sigurðsson

Sæll félagi. þessi grein hjá þér er ein sú besta sem ég hef séð lengi á prenti.

Þessir mótmælendur við Hótel Borg í gær þau  eru bara ,,hyski,, og það er alveg á hreinu að ungliðahreifing Vinstri grænna standa að þessu og þar kemur Álfheiður Ingadóttir bein að því hún er eitthvað lasin í höfðinu og ætti að hætta á þingi. 

Skúli Sigurðsson, 1.1.2009 kl. 14:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband